Velkomin á heimasíðu lyfjastofnana Evrópu, HMA
Þessi heimasíða er sameiginleg fyrir lyfjastofnanir á Evrópska efnahagssvæðinu, sem sjá um mannalyf og dýralyf. Síðan býður upp á tvær leiðir; mannalyf og dýralyf
Um HMA (Heads of Medicines Agencies)
Hlutverk og stefna
Forstöðumenn lyfjastofnana á Evrópska efnahagssvæðinu funda reglulega til að velja áherslur í stefnu stjórnvalda á sviði lyfjamála auk þess að skapa vettvang til að skiptast á sjónarmiðum og skoðunum um áhugaverð mál sem tengjast lyfjum og geta haft evrópska skírskotun.
Hópurinn beitir sér fyrir því að:
- Tryggja faglegan og vísindalegan stuðning af hæstu gæðum til stjórnsýslu lyfjamála á efnahagssvæðinu
- Stuðla að jafnvægi sjónarmiða milli nauðsynlegra ferla lyfjamála og þeirra auknu krafna fyrir lyfjastofnanir sem af þeim leiðir
- Veita forystu og yfirsýn í ferli gagnkvæmrar viðurkenningar á lyfjum innan efnahagssvæðisins
- Finna og koma á framfæri hagnýtum lausnum á vanda sem upp kann að koma innan lyfjamálakerfis aðildarríkjanna
- Skapa farveg til að koma sjónarmiðum lyfjastofnana aðildarríkjanna á framfæri við Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins og lyfjastofnun Evrópu, EMEA.
- Funda að jafnaði tvisvar á hverri formannstíð. Formennska er hjá því aðildarríki sem hefur forsæti í Ráðherraráði Evrópusambandsins og er jafnframt þjónað af því ríki. Sé þetta ekki unnt semja forstöðumenn um aðra tilhögun. Ábyrgð á eðlilegri framvindu í starfi hópsins hvílir á herðum forstöðumanna lyfjastofnana þeirra þriggja ríkja sem mynda hóp ábyrgðaraðila síðasta, núverandi og næsta fundar hópsins.






























